Aðgengismál
Aðgengnismál er án efa orðinn sá málaflokkur sem skiptir blinda og sjónskerta einna mestu máli í nútímasamfélagi. Aðgengi er ekki einungis spurningin um ferilfræðilegt aðgengi, þ.e. að komast á milli staða á sjálfstæðan máta, heldur er aðgengi að upplýsingum í því upplýsingasamfélagi sem við búum í að verða sífellt mikilvægara og mikilvægara. Aðgengismál eru því nokkurskonar eillífðarmálaflokkur sem tekur örum breytingum.
Ábenndingar um alvarlegar aðgegnishindranir, hvor sem er á vefnum eða í umhverrfinu má senda til Blindrafélagsins. Á vettvangi félagsins mun þá verða brugðist við með viðeigandi hætti og úrbóta leitað. Eins eru ábendingar um þar sem vel er að verki staðið, vel þegnar.
Í undirflokki á þessari síðu má sjá lista yfir vefsvæði sem eru til fyrirmyndar hvað varðar aðgengi. Einnig vefsíður þar sem eðlilegt er að gera kröfur um betra aðgengi án þess að ábendingum um slíkt hafi verið sinnt
Hér fyrir neðan eru gagnlegar heimasíður aðila sem vinna að aðgengismálum.
Aðgengi ehf - Aðgengi fyrir alla, alltaf, allsstaðar.
