Skýrsla samgönguráðuneytisins vegna aðildar Íslands að Sáttmála sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Í tilefni af aðild Íslands að Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þá lét samgönguráðuneytið vinna skýrslu um þá málaflokka sem snúa að ráðuneytinu, en undir það falla m.a.fjarskipti eins og interntetið
Í skýrslunni segir m.a:
Aðgengi fatlaðra að fjarskiptum er mikilvægt. Í 19. gr. fjarskiptalaga er kveðið á um að til alþjónustu teljist þjónusta við öryrkja eða notendur með sérstakar þjóðfélagsþarfir. Mikilvægt er að þau tækifæri sem skapast með þróun fjarskipta og samrunanum nýtist öllum, þ.m.t. fötluðum.”
einnig þetta:
Í samhengi við aðgengi fatlaðra að netinu má velta upp þeim möguleika að í almennum leikreglum um lén yrði aðgengi fatlaðra eitt af skilyrðum fyrir skráningu léna á Íslandi. Slík ráðstöfun fæli í sér breytingar á gildandi reglum um skráningu léna á Íslandi.
