Vefsvæði með aðgengishindrunum
Samkvæmt ábendingum frá notendum
Stefna ríkisstjórnar Íslands
Eftirfarandi markmið setti ríkisstjórn Íslands fram árið 2004 varðandi aðgang að upplýsingasamfélaginu, " Auðlindir í allra þágu":
Tryggt verði að rafræn þjónusta opinberra aðila taki mið af þörfum ólíkra hópa s.s. blindra, sjónskertra og fatlaðra. Fyrirtæki verði hvött til að gera hið sama. Viðmið eða leiðbeiningar verði mótaðar af samráðshópi um stjórnarráðsvef í samráði við félagsmálaráðuneytið.
Frekari upplýsingar frá ríkisstjórn Íslands má finna hér, en þar sem segir m.a:
“Ákveðið hefur verið að fara að þeim tillögum sem lagðar eru fram í skýrslunni og stefna að því að allir opinberir vefir á Íslandi uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur í aðgengismálum”.
Einnig má finna hér upplýsingar í tengslum við Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur verið samþykktur og undirritaður af ríkisstjórn Íslands og nýja skýrslu frá Samgönguráðuneytinu: en fjarskipti eins og t.d. Internetið falla m.a. undir það ráðuneyti. Þar segir m.a. : “Aðgengi fatlaðra að fjarskiptum er mikilvægt. Í 19. gr. fjarskiptalaga er kveðið á um að til alþjónustu teljist þjónusta við öryrkja eða notendur með sérstakar þjóðfélagsþarfir. Mikilvægt er að þau tækifæri sem skapast með þróun fjarskipta og samrunanum nýtist öllum, þ.m.t. fötluðum.”
Úrbætur
Hér fyrir neðan er birtur listi yfir vefsvæði sem notendur hafa bent á að búi yfir aðgengishindrunum sem valdið hafa erfiðleikum. Athugið að vefsíðurnar eru misjafnlega óaðgengilegar. Þær verstu eru afar erfiðar blindum notendum en þær skástu hafa einhverja hluta sem þarf að laga:
Blindrafélagið hvetur umsjónamenn þessara vefsvæða til að gera viðeigandi ráðstafanir til að laga aðgengi að þessum vefsvæðum.
Blindrafélagið mun senda þessum aðilum ábendingar og leiðbeiningar hvernig hægt er að standa að viðeigandi úrbótum.
Vefisvæði með aðgengishindrunum samkvæmt ábendingum notenda:
Opinber og hálfopinber vefsvæði:
- Alþingi - www.althingi.is Bréf hefur verið sent og unnið er að úrbótum
- Vinnumálastofnun - www.vinnumalastofnun.is Bréf hefur verið sent og unnið er að úrbótum.
- Neytendasamtökin - http://www.ns.is
- Námsmatsstofnun - www.namsmat.is
- Biskupsstofa - http://kirkjan.is/stjornsysla/
- Janfréttisstofa - www.jafnretti.is
- Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra - www.shh.is
Fyrirtækjavefir:
- Computer.is - www.computer.is
- bloggar.is - www.bloggar.is
- ruv.is - www.ruv.is
- visir.is - www.visir.is
- bylgjan.is - www.bylgjan.is
- Pizzahut - www.pizzahut.is
- Sólon.is - www.solon.is
- Sjávarkjallarinn - http://sjavarkjallarinn.is
- Potturinn og Pannan - http://potturinnogpannan.is
- Bónus - www.bonus.is
