Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Verkefni

Hvatninga styrkþegar 2008

Samtals 6 félagsmenn Blindrafélagsins fá styrki að upphæð 1.500 þúsund krónur.

Á aðalfundi Blindrafélagsins þann 17 maí 2008 var eftirtöldum veittir hvatningarstyrki Blindrafélagsins:

Guðfinnur Karlsson fékk 100 þúsund krónur vegna keppnisferðar í sundi,

Bergvin Oddsson fékk 300 þúsund krónur vegna útgáfu á unglingaskáldsögu sinni, en húnkom út þann 24. maí 2008.

Inga Sæland Ástvaldsdóttir voru veittar 300 þúsund krónur vegna útgáfu á geisladiski með eigin söng. Diskurinn mun innihalda 4 til 6 lög og verður gerður í samvinnu við þekkta tónlistarmenn.

Rósa Ragnarsdóttir garðyrkjufræðingur fékk 300 þúsund krónur til kaupa á tækjum til garðyrkjuvinnu, en Rósa hyggst hefja garðyrkjuþjónustu á eigin vegum.

Marja Kaisa Matthíasson fékk 100 þúsund krónur vegna þátttöku í bókamessu í Finnlandi, en þar kynnti hún m.a. finnska þýðingu sína á bók eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson,

Helena Björnsdóttir fékk 300 þúsund krónur til kaupa á sérstöku vinnuborði til myndlistarstarfa, en Helena hyggst leggja myndlist meira fyrir sig.

Allir styrkþegar veittu styrkjunum viðtöku nema Helena sem búsett er í Noregi en Klara Hilmarsdóttir, ráðgjafi félagsins, tók við honum fyrir hennar hönd.

Í úthlutunarnefnd áttu sæti þau Björk Vilhelmsdóttir, Erna Guðmundsdóttir og Helgi Seljan.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica