Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Verkefni

Hvatningarstyrkir Blindrafélagsins

Tilgangur

Stjórn Blindrafélagsins hefur ákveðið að setja á fót hvatningarstyrki Blindrafélagsins. Tilgangur styrkjanna er að veita félagsmönnum á aldrinum 18 ára og eldri hvatningarstyrki sem tengjast atvinnu, listum, menningu, afreksíþróttum og öðrum aðstæðum þar sem félagsmenn eru að takast á við spennandi og óhefðbundin verkefni. Eingöngu skal veita styrki til verkefna sem ekki eiga kost á styrkjum úr öðrum sjóðum á vegum Blindrafélagsins.

Úthlutanir

Stjórn félagsins auglýsir og úthlutar þessum styrkjum einu sinni á ári í samræmi við úthlutunarreglur sem stjórn endurskoðar eftir því sem þurfa þykir.

Auglýsingar

Auglýst skal eftir umsóknum um hvatningarstyrkina á miðlum félagsins með minnst 4 vikna fyrirvara og skal umsóknarfrestur tilgreindur í auglýsingunni.

Umsóknir

Umsóknir um styrki skulu berast á sérstökum umsóknareyðublöðum sem liggja skulu frammi á skrifstofu félagsins og á heimasíðu þess. Einnig má nálgast umsóknareyðublað hér

Upphæð styrkja

Stjórn ákveður, hverju sinni, fjárhæð styrkja.

Styrktarbeiðnir í farveg

Ástæður þess að stjórn hyggst koma á fót hvatningarstyrkjum Blindrafélagsins eru einkum þær að hún telur brýnt að hvetja félagsmenn til að takast á við ögrandi og óhefðbundin verkefni. Stjórn hafa borist beiðnir um styrki frá félagsmönnum sem eru að vinna að sérstökum verkefnum á eigin vegum og hefur ekki verið hægt að bregðast við slíkum beiðnum með viðunandi hætti þar sem engar vinnureglur hafa gilt um slíka fjárstyrki. Með veitingu hvatningarstyrkja einu sinni á ári, vill stjórnin koma öllum slíkum styrkbeiðnum í einn farveg.

Úthlutunarnefnd

Úthlutunarnefnd skal skipuð þremur einstaklingum og telur stjórn að rétt sé að þeir séu allir utanfélagsmenn.
Starfsmaður úthlutunarnefndar er ráðgjafi félagsins, Klara Hilmarsdóttir, og situr ráðgjafinn fundi úthlutunarnefndar.
Fundir nefndarinnar skulu færðir til bókar.

Erindisbréf úthlutunarnefndar

Stjórn skal senda úthlutunarnefndinni sérstakt erindisbréf fyrir hverja úthlutun þar sem hlutverk nefndarinnar og markmið úthlutunarinnar verði skilgreint. Fylgja skal bréfinu upplýsingar um þær fjárupphæðir sem nefndin hefur til ráðstöfunar hverju sinni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica