Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Verkefni

Úthlutunarreglur fyrir hvatningarstyrki Blindrafélagsins

1. grein

Styrkþegar verða að vera 18 ára eða eldri og vera félagsmenn í Blindrafélaginu og hafa greitt félagsgjöld til félagsins.

2. grein

Umsóknareyðublöð verða að vera vel út fyllt og allar umbeðnar upplýsingar verða að koma fram. Verði umsækjandi beðinn um frekari upplýsingar, verður að veita þær.

3. grein

Markmið með verkefnum sem sótt er um styrki til, þurfa að vera skýr og raunhæfar vonir um árangur. 

4. grein

Þeir sem hljóta hvatningarstyrk Blindrafélagsins verða að skila inn greinargerð um hvernig styrkurinn hafi nýst eigi síðar en einu ári eftir úthlutun. 

5. grein

Þeir sem eru að sækja um styrk í fyrsta sinn skulu hafa forgang þegar kemur að úthlutun.

6. grein

Hægt er að sækja um oftar en einu sinni til sama verkefnisins.

7. grein

Þeir sem fá hvatningarstyrk Blindrafélagsins verða að vera tilbúnir að veita viðtöl á miðlum félagsins, s.s. á Völdum greinum og á heimasíðu. 

8. grein

Úthlutunarnefndinni er ekki skylt að veita öllum umsækjendum styrk hverju sinni.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica