Sjóðurinn Blind börn á Íslandi
Hlutverk sjóðsins er að styrkja blind og sjónskert börn allt að átján ára aldri til kaupa á ýmsu því sem getur orðið þeim til aukins þroska og ánægju í lífinu. Þar á meðal eru sérhönnuð leikföng, leiktæki, hljóðfæri, tölvur og annað slíkt sem opinberir aðilar styrkja ekki foreldra til kaupa á.





