Sjóðurinn Blind börn á Íslandi
Sjóðurinn blind börn á Íslandi var stofnaður sumarið 1992 í útvarpsþætti Jóns Axels og Gulla “Tveir með öllu”. Sjóðurinn er í vörslu Blindrafélagsins en stjórn sjóðsins sér um að úthluta styrkjum úr honum tvisvar á ári. Hlutverk sjóðsins er að styrkja blind og sjónskert börn allt að átján ára aldri til kaupa á ýmsu því sem getur orðið þeim til aukins þroska og ánægju í lífinu. Þar á meðal eru sérhönnuð leikföng, leiktæki, hljóðfæri, tölvur og annað slíkt sem opinberir aðilar styrkja ekki foreldra til kaupa á.
Hvetjandi styrkir
Á þessum rúmlega áratug sem sjóðurinn hefur starfað hafa honum borist myndarlegar gjafir sem hefur gert honum kleift að styrkja foreldra blindra og sjónskertra barna við að tryggja börnum sínum örvandi og gott umhverfi. Nám í hljóðfæraleik af ýmsu tagi vekur áhuga hjá börnum en kostnaður af slíku námi er umtalsverður og sjóðurinn hefur oft getað styrkt foreldra blindra og sjónskertra barna til kaupa á hljóðfærum við hæfi. Allri tækni hefur líka fleygt fram á síðustu árum og hefur tölvan opnað blindum og sjónskertum nýja leið út í samfélagið á margan hátt. Hún hefur með tímanum orðið eitt af allra nauðsynlegustu hjálpartækjum blindra og sjónskertra barna og unglinga við nám bæði í grunnskólum og framhaldsskólum. Kaup á fartölvum fyrir börn á grunnskólaaldri eru að sjálfsögðu mikill kostnaðarauki fyrir foreldra og þessi tæki hafa hingað til ekki verið talin til nauðsynja fyrir börn á þessu aldursskeiði. Sjóðurinn hefur eftir bestu getu reynt að styrkja foreldra til kaupa á þessum mikilvægu tækjum.
Leikföng
Gildi góðra leikfanga og leiktækja er mikið í uppeldi allra barna en þegar um er að ræða blind eða sjónskert börn geta góð leiktæki skipt sköpum. Leikföng fyrir blind og sjónskert börn þurfa að hafa þann eiginleka að örva börn til þess að hreyfa sig úr stað og hjálpa þeim til þess að átta sig á umhverfi sínu. Börnin þurfa að geta þreifað á og hlustað á leikföngin til þess að fá tilfinningu fyrir því hvernig hlutirnir líta út. Í gegn um leik og kennslu kynnast þau því hvernig hlutir í daglega lífinu líta út og læra til hvers þeir eru notaðir. Sjóðurinn lagði grunn að leikfangasafni fyrir blind og sjónskert börn sem hefur verið komið fyrir hjá Sjónstöð Íslands. Sjóðurinn hefur undanfarin ár úthlutað styrkjum til kaupa á leikföngum til safnsins og standa vonir til þess að það vaxi með tíð og tíma og verði blindum og sjónskertum börnum bæði til ánægju og aukins þroska.
Sjóðurinn hafði frumkvæði að því að leggja grunninn að leikfangasafni fyrir blind og sjónskert börn á síðasta ári. Sérhönnuð leikföng og leiktæki fyrir blinda og sjónskerta eru dýr og notast ekki hverjum og einum nema í stuttan tíma. Það var því ákveðið í samráði við Sjónstöð Íslands að úthluta árlega styrkjum úr sjóðnum til kaupa á dýrari leiktækjum með þeim fyrirvara að þeim væri síðan skilað til Sjónstöðvar eftir að ekki væru not fyrir þau lengur. Leikfangasafnið er eðli málsins samkvæmt ekki stórt í sniðum ennþá en vonir standa til að vaxi með tíð og tíma og verði blindum og sjónskertum börnum bæði til ánægju og aukins þroska.
Minningarbréf tilk styrktar sjóðnum
Ein af fjáröflunarleiðum sjóðsins er sending minningabréfa vegna látinna ástvina en einnig höfum við til sölu gjafabréf þar sem sjóðnum eru færðar gjafir í tilefni af afmælum eða af öðrum hátíðlegum tilefnum en þá er afmælisbörnum send bréf þar sem sagt er frá því að sjóðnum hafi borist gjöf vegna tiltekins atburðar.
Úthlutanir
Úthlutanir á styrkjum úr sjóðnum fara fram tvisvar á ári. Sumardaginn fyrsta að vori og fyrsta vetrardag að hausti. Umsóknum skal skilað til Blindrafélagsins ásamt kostnaðaráætlun vegna þess sem beðið er um styrk til Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17.

