Viðburðir
Opið hús á laugardegi
Opið hús laugardaginn 6. febrúar !
Nú er komið að fyrsta laugardags opna húsinu á nýju ári. Verður það laugardaginn 6. febrúar nk. og hefst kl. 11.
Að þessu sinni kemur Pétur Blöndal, blaðamaður til okkar. Hann ætlar að vera með spennandi sögufyrirlestur, þar sem hann tekur fyrir valda kafla úr fornsögunum.
Klukkan 12 verður framreiddur dýrindis folaldapottréttur með allskonar meðlæti. Eftir góða stund yfir matnum, hlustum við á tónlist til kl. 14.
Skráning fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins eigi síðar en fimmtudaginn 4. febrúar.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og eiga góða stund saman.





