Fara í leit

Viðburðir

20.02.2010, kl.18:30 - 0:00 Tilkynningar

Þorrablót Blindrafélagsins

 

Þorrablót Blindrafélagsins

 

Nú blótum við þorra á þorraþræl þann 20. febrúar  2010.

 

Maturinn kemur frá honum Stefáni á „Just Fodd to all“ áður á Rauðará og verður hann góður og vel útilátinn að vanda.

 

Dagskráin verður með hefðbundnum hætti s.s minni karla og kvenna, fjöldasöngur, gamanmál og einnig verður a.m.k. eitt leyniatriði.  Og að lokum stígum við dansinn eitthvað út í nóttina.

 

Aðgangseyrinn að þessu sinni er kr 4.000 sem greiðist við innganginn.

 

Skráning fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17. sími: 525 0000, netfang: afgreidsla@blind.is fram til þriðjudagsins 16. febrúar.

 

Kortagreiðsluvél (Posi) á staðnum.

 

Skemmtinefndin

 

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica