Viðburðir
Félagsfundur Blindrafélagsins
Boðað er til félagsfundar hjá Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskertra á Íslandi, fimmtudaginn 25 mars kl 17:00 að Hamrahlíð 17.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Kynning viðstaddra
4. Samþykkt seinustu fundargerðar
5. Nýr íslenskur talþjónn.
Kynning á verkefni sem miðar að því að Blindrafélagið hafi forustu um að smíðaður verði nýr íslenskur talþjónn.
6. Umræður
7. Kynning á nýju bakhjarlakerfi Blindrafélagsins sem leysir af hólmi styrktarfélagkerfi félagsins.
8. Umræður
9. Önnur mál
10. Fundarslit
Boðið verður upp á léttar veitinga á fundinum.
Stjórn Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi.





