Fara í leit

Viðburðir

27.03.2010, kl.11:00 - 14:00 Tilkynningar

Opið hús á laugardegi

 

Opið hús laugardaginn 27. mars.

 

Opið hús verður, í Hamrahlíð 17, laugardaginn 27. mars nk. og hefst það að venju kl. 11.00.

 

Gestur opna hússins að þessu sinni verður Pétur Blöndal alþingismaður.

Pétur hefur ýmislegt brallað í gegnum tíðina, stundað nám við húsmæðraskóla á Löngumýri í Skagafirði þar sem hann uppgötvaði m.a. stærðfræðina, stundað nám í  Þýskalandi og víða farið og margt séð.

 

Fyrir nokkrum áratugum sótti hann þrjú tökubörn til frumstæðra ríkja á þeim tíma, eitt til Indónesíu og tvö til Tyrklands.

Í ferð sinni til Indónesíu þurfti hann að velja sér barn úr hópi mjög vannærðra og veikra barna og aðstæður voru allar afar átakanlegar, sérstaklega vegna þess að í landinu hafði verið háð stríð og fólk hafði búið þar við ótrúlegar hörmungar lengi.

Pétur mun segja frá þessu ásamt ýmsu fleiru sem hann hefur gert og upplifað.

 

Hann lofar að minnast hvorki á Icesave né stjórnmálaástandið í samfélaginu um þessar mundir, er sammála stjórnendum opna hússins um að til þess sé annar vettvangur betri.

Að loknu erindi Péturs gefst gestum kostur á fyrirspurnum.

 

Hádegisverður verður svo borinn fram kl. 12.00 og verður það steikt lambalæri á sama gamla góða verðinu, 500 kr. Eftir matarhlé mun Haukur Sigtryggsson listamaður fara með vísur og kvæði.

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica