Fara í leit

Viðburðir

29.04.2010, kl.15:30 - 18:00 Tilkynningar

Fundur í heilsuklúbbnum

 

 

Síðasti fundur Heilsuklúbbs Blindrafélagsins verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl klukkan hálf fjögur í salnum á 2. hæð að Hamrahlíð 17.

Gestur okkar verður dr. Sigmundur Guðbjarnarson prófessor. Hann mun flytja okkur fyrirlestur sem nefnist “Hvers vegna er grænmeti hollt?”. Hann miðlar okkur fróðleik af rannsóknum sínum á grænmeti og lækningajurtum og heilsubótaefnum unnum úr þeim afurðum. Einnig mun hann segja okkur frá fyrirtækinu Saga Medica og vörum sem þeir framleiða úr Hvönn. Má þar nefna:

1. Angelica sem bætir ónæmiskerfið og vinnur á móti veirusýkingum og hefur auk þess reynst vel við þunglyndi, o.m.fl.,

2. Voxis hálsbrjóstsykur við særindum í hálsi,

3. SagaPro sem reynist vel við ofstækkun blöðruhálskirtils og tíðum þvaglátum á nóttu og síðast en ekki síst

4. SagaMemo sem bætir minnið. 

 

 

 

 

 

 

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica