Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Viðburðir

| 9 ágú. 2010 |

09.08.2010, kl.16:00 - 18:00 Tilkynningar

Tölvunámskeið

 

Tölvunámskeið fyrir sjónskerta á vegum Tölvumiðstöðvar fatlaðra

í samvinnu við Blindrafélagið

· Tölvunámskeið- Netið í þína þágu fyrir vanari tölvunotendur sem kunna á stækkunarbúnaðinn sinn eða nota stækkun innan Windows.

Kennt hvernig má sníða viðmót netsins að eigin þörfum og setja síður í bókamerki (favorit).

Netsíður skoðaðar ásamt stillingum sem í boði eru. Heimasíður sem sérstaklega verður farið yfir eru Já, mbl, vísir, strætó. Einnig eru síður að óskum þátttakanda skoðaðar.

Gagnleg verkfæri á netinu skoðuð og prófuð eins og Skype og Google og kennt hvernig á að stofna frítt vefpóstfang í Google.

Dagsetning:  mánudagur  9. ágúst, fimmtudagur 12. ágúst, mánudagur 16. ágúst  Kl. 16-18. Námskeið er haldið á Háaleitisbraut 13 í sal á 4 hæð.
Verð 6000,  skráningargjald greiðist hjá Blindrafélaginu. Þeir sem nota fartölvu geta komið með hana á námskeiðið.

Skráning á námskeiðið er fyrir 1. ágúst hjá Blindrafélaginu sími 52 50000 netfang: blind@blind.is     Kennt er í 5 -8 manna hóp.

Upplýsingar um námskeiðið er hjá Tölvumiðstöð fatlaðra sími 562 9494 eða 699 6713 netfang: sigrun@tmf.is

 

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica