Viðburðir
Skartgripagerð
Skartgripagerð
Námskeið í skartgripagerð verður haldið í Gliti að Krókhálsi 5, mánudaginn 11. október, kl. 18 - 21. Námskeiðið er í eitt skipti. Verð kr. 6.000 og allt efni er innifalið. Þátttakendur munu hekla hálsfesti úr vír sem perlur eru þræddar uppá. Tilvalið fyrir þá sem hafa gaman af að hekla eða eru til í að prófa eitthvað nýtt. Hámarksfjöldi þátttakenda er sex. Skráning fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525-0000.
Tómstundanefnd
