Viðburðir
Bókmenntaklúbburinn
Bókmenntaklúbbur Blindrafélagsins byrjar af fullum krafti starfsemi sína þriðjudaginn 21. september n.k.
Eins og fyrri vetur munum við hittast reglulega fyrsta og þriðja þriðjudaginn í hverjum mánuði. Við byrjum klukkan hálf fimm og hættum á mínútunni sex. Allir eru velkomnir í klúbbinn en gott væri að nýir meðlimir hefðu samband við undirritaða svo hægt verði að hafa bók tilbúna fyrir viðkomandi.
Fyrsta bókin sem við lesum saman í vetur er Bréf til Sólu eftir Þórberg Þórðarson.
Með bestu kveðju,
Brynja,
netf. brynja@blind.is
s. 525 00 00
gsm 898 68 91
