Samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Fara í leit

Blindrafélagið

Viðburðir

20.10.2010, kl.9:00 - 12:00 Tilkynningar

Tölvunámskeið

 

Tölvunámskeið fyrir sjónskerta á vegum Tölvumiðstöðvar fatlaðra

í samvinnu við Blindrafélagið

·       Tölvunámskeið                                                                                                                                                                                                                          - Fyrstu skrefin fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í tölvuheiminum. Kennt er á tölvur með Windows stýrikerfinu.
Farið í grunnatriði
tölvunnar og algengustu hugtök útskýrð. Kennt hvernig hægt er að sníða Windows umhverfið að eigin þörfum.

Kynnt er hvernig stækkunarbúnaður og talþjónar virka en það eru sérstök forrit sem   hönnuð eru fyrir sjónskerta. Þátttakendur læra að fara á netið.

Kennarar bjóða upp á eina heimsókn heim til þátttakanda í lok námskeiðsins til að aðstoða við tölvuna heima.

Dagsetning: miðvikudagur 20. október og föstudagur 22. október
Klukkan 9 – 12
Námskeið er haldið á Háaleitisbraut 13 í sal á 4 hæð.
Verð 6000,  skráningargjald greiðist hjá Blindrafélaginu. Þeir sem nota fartölvu geta komið með hana á námskeiðið.

Skráning á námskeiðið er fyrir 13. október hjá Blindrafélaginu sími 52 50000 netfang: blind@blind.is     Kennt er í 5 -8 manna hópum.

Upplýsingar um námskeiðið er hjá Tölvumiðstöð fatlaðra sími 562 9494 eða 699 6713 netfang: sigrun@tmf.is og hronn@tmf.is

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica