Viðburðir
Tölvunámskeið
Tölvunámskeið fyrir sjónskerta á vegum Tölvumiðstöðvar fatlaðra
í samvinnu við Blindrafélagið
· Tölvunámskeið- Fyrstu skrefin fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í tölvuheiminum.
Farið í grunnatriði tölvunnar og algengustu hugtök útskýrð. Kennt hvernig hægt er að sníða Windows umhverfið að eigin þörfum.
Kynnt er hvernig stækkunarbúnaður og talþjónar virka en það eru sérstök forrit sem hönnuð eru fyrir sjónskerta.
Þátttakendur læra að fara á netið.
Kennarar bjóða upp á eina heimsókn heim til þátttakanda í lok námskeiðsins til að aðstoða við tölvuna heima.
Dagsetning: mánudagur 9. ágúst, fimmtudagur 12. ágúst, mánudagur 16. ágúst Kl. 13-15. Námskeið er haldið á Háaleitisbraut 13 í sal á 4 hæð.
Verð 6000, skráningargjald greiðist hjá Blindrafélaginu. Þeir sem nota fartölvu geta komið með hana á námskeiðið.
Skráning á námskeiðið er fyrir 1. ágúst hjá Blindrafélaginu sími 525-0000
netfang: blind@blind.is Kennt er í 5 – 8 manna hóp.
Upplýsingar um námskeiðið er hjá Tölvumiðstöð fatlaðra sími 562 9494 eða 699 6713
netfang: sigrun@tmf.is
