Viðburðir
Leirmótun
Leirmótun
Námskeið í leirmótun hefst mánudaginn 6. febrúar nk.
Kennt verður í félagsmiðstöð aldraðra, Furugerði 1, og kennari er Olga Dagmar Erlendsdóttir. Tímarnir eru einu sinni í viku, á mánudögum frá kl. 19.00 til kl. 22.00. Kennt verður í átta skipti.
Námskeiðsgjald er 10.000 kr. og innifalið í því er efnið, aðstaðan og brennsla á munum.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525 0000 og síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 1. febrúar.
Athugið að aðeins komast sex nemendur á námskeiðið þannig að nú er að drífa í að láta skrá sig.
Bestu kveðjur,
tómstundanefnd.
