Fara í leit

Blindrafélagið

Viðburðir

21.01.2012, kl.19:00 - 21:00 Tilkynningar

Tónleikar að Hamrahlíð 17

 

 

Tónleikar að Hamrahlíð 17

laugardaginn 21. janúar kl. 19:00

 

Stjórn Blindrafélagsins býður öllum félagsmönnum til tónleika

laugardaginn 21. janúar næstkomandi að Hamrahlíð 17.

Tónleikarnir hefjast kl. 19:00 og verða í salnum á annarri hæð.

Þar mun hljómsveitin "The Vissionaries" eða hugsjónafólkið flytja dagskrá,

sem flutt var á Evrópuþingi blindra og sjónskertra, sem haldið var í Frederecia í Danmörku í byrjun október síðast liðins.

Þau sem eru í hljómsveitinni eru öll aðalfélagar í Blindrafélaginu.

Hljómsveitarstjóri er Hlynur Þór Agnarsson sem leikur á píanó, bassa og syngur.

Rósa Ragnarsdóttir syngur eins og henni er einni lagið.

Haraldur Gunnar Hjálmarsson fer hamförum á  píanó, bassa og syngur.

Gísli Helgason leikur á blokkflautur, slagverk og önnur svo kölluð barnahljóðfæri.

 

Hljómsveitin hlaut mjög góðar viðtökur á tónleikunum í Fuglsangssentret í Danmörku.

Hún flytur frumsamið efni auk tónlistar eftir aðra.

Sum sé: Tónleikarnir verða laugardaginn 21. janúar

og hefjast kl. 19:00 í salnum á annarri hæð í Hamrahlíð 17.

Allir félagsmenn velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

 

Stjórn Blindrafélagsins.

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica