Viðburðir
Fundur í Suðurlandsdeild
Fyrsti fundurinn í Suðurlandsdeildinni á þessu ári verður síðasta mánudaginn í janúar sem er sá þrítugasti.
Eins og að vanda verðum við í Rauðakrosshúsinu við Engjaveg og verðum frá kl. fjögur til hálfsex.
Það sem okkur liggur mest á hjarta þessa dagana eru ferðamálin eins og fyrri daginn og mun svo verða þar til það mál er komið í höfn .
Blindrafélagið er að vinna í því máli fyrir okkur með Kristni Halldóri formanni Blindrafélagsins og lögfræðingnum okkar Páli Rúnari í fararbroddi .
Þeir eru að vinna í málinu og ég vænti þess að eitthvað bitastætt verði að frétta þegar kemur að fundinum.
Svo er væntanlegur samráðsfundur hjá Blindrafélaginu þann 21. og mun Ingibjörg sennilega mæta fyrir okkar hönd og segir okkur væntanlega fréttir af honum.
Dagatölin með stóra letrinu verða á boðstólum .
Hittumst öll hress og kát og ræðum þessi mál.
Bestu kveðjur.
Guðrún S Þórarinsdóttir
