Viðburðir
Handavinnunámskeið
Handavinnunámskeið!
Tómstundanefnd Blindrafélagsins hefur ákveðið að halda tvö námskeið í handavinnu.
Kennt verður á þriðjudögum frá kl. 10 til 12 og fimmtudögum frá kl. 16 til 18.
Þriðjudagsnámskeiðin hefjast 31. janúar og fimmtudagsnámskeiðin hefjast 2. febrúar.
Kennt verður að Hamrahlíð 17, í tómstundaherberginu á 3 hæð .
Kennari er Halla Guðmundsdóttir.
Hvort námskeið er átta skipti og komast hámark 6 mans að í einu.
Gjald er kr. 7.000.
Halla kennir saum, hekl og prjón.
Skráning fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525 0000.
Með bestu kveðju
tómstundanefnd.





