Fara í leit

Viðburðir

25.02.2012, kl.11:00 - 14:00 Tilkynningar

Opið hús á laugardegi

 

Opið hús á laugardegi

 

Nú er komið að fyrsta Opna húsinu á laugardegi á nýju ári. Verður það laugardaginn 25. febrúar nk. og hefst það kl. 11.00 að Hamrahlíð 17.

 

Að þessu sinni kemur, Gísli Helgason til okkar og mun hann segja frá tilurð Eyjapistlanna sem hann og Arnþór Helgasona höfðu umsjón með í útvarpi  í kjölfar Eyjagossins .

 

Kl. 12.00 verður framreiddur ferskasti fiskurinn sem dreginn verður á land þann dag að hætti Begga kokks. Ennþá gamla verðið kr. 500.

 

Eftir góða stund yfir matnum , fáum við til okkar hljómsveitina „Hugsjónafólkið“ (Vissionaries). Hljómsveitina skipa félagar Blindrafélagsins þau:

Hlynur Þór Agnarsson, Rósa Ragnarsdóttir, Haraldur G Hjálmarsson og Gísli Helgason.

Bjóðið nú börnum og barnabörnum í skemmtilegt Opið hús á laugardegi.

 

Skráning fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525-0000 eða á netfangið steinunn@blind.is eigi síðar en miðvikudaginn 22. febrúar.

                           

 

 

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica