Vinningaskrá fyrir sumarhappdrætti Blindrafélagsins 2022

Dregið var í sumarhappdrætti Blindrafélagsins mánudaginn 4. júlí 2022 og er hægt að skoða vinningaskránna hér á heimasíðu félagsins. Einnig er hægt að nota leitarvélina neðst á aðalsíðunni til að athuga hvort vinningur hafi komið á númer happdrættismiðans.

Vinningaskráin mun einnig birtast í Fréttablaðinu, annað hvort miðvikudaginn 6. júlí eða fimmtudaginn 7. júlí.

Blindrafélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn.

Gleðilegt sumar.