Jólaskemmtun foreldradeildar og sjóðsins blind börn á Íslandi

Hin árlega jólaskemmtun foreldradeildar og sjóðsins blind börn á Íslandi verður haldin laugardaginn 30. nóvember kl. 12 í Hamrahlíð 17.

Leikum og syngjum saman og dönsum í kringum jólatré. Það má líka búast við leynigest í heimsókn.

Allir eru hjartanlega velkomnir til að njóta samverunnar.

Skráning í afgreiðslu Blindrafélagsins í síma 525 0000 eða í netfangið kaisa@blind.is fyrir 27. nóvember næstkomandi.