Leiðsöguhundanámskeið hjá ÞÞM

Námskeið um leiðsöguhunda verður haldið hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, Hamrahlíð 17, Reykjavík dagana 10. febrúar til 12. febrúar frá klukkan 10:00 til 15:00.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að sækja um leiðsöguhund í nánustu framtíð. Námskeiðið er forsenda þess að eiga inni virka umsókn um leiðsöguhund.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt þar sem þátttakendum er boðið upp á að vinna með leiðsöguhundi undir handleiðslu fagfólks.

Leiðbeinendur eru Björk Arnardóttir, Vala Jóna Garðarsdóttir, Drífa Gestsdóttir og Carina Jönsson.

Nánari upplýsingar veita Björk Arnardóttir hundaþjálfari (bjork.arnardottir@midstod.is) og Vala Jóna Garðarsdóttir fagstjóri, (vala.garðarsdottir@midstod.is).

Skráning fer fram fyrir 6. febrúar hjá Þjónustu og þekkingarmiðstöð í síma 545 5800.