Opið hús á fimmtudegi

Fimmtudaginn 22. Mars verður Ólafur Beinteinn Ólafsson umsjónarmaður. Gestur Ólafs verður Ingibjörg Aldís dóttir hans. Þau feðgin munu halda áfram umfjöllun sinni um Álftagerðisbræður, einkum Pétur og leika af geisladiski með söng þeirra. Þá verður ljóðarabbið á döfinni og svo þjóðlegur fróðleikur. Hópsöngur og gamanmál verða líka á dagskrá.