Opið hús á laugardegi

Laugardaginn 8. febrúar verður Hjalti Sigurðsson með umsjón með Opnu húsi sem hefst klukkan 11:00.

Hjalti fær til sín góða gesti, Svavar Knút og Eyþór Kamban Þrastarsson. Fyrir hádegismat ætlar Svavar Knútur að syngja, sprella og segja sögur eins og honum er einum lagið. Hádegisverður verður framreyddur um klukka 12:00. Katla reiðir fram dýrindis lambakjöt. Eftir matinn ætlar Eyþór að mæta með harmóníkuna til að hrista upp í lýðnum.

Hádegisverðurinn kostar 1.500 krónur og greitt er fyrir miðann við skráningu. Skráningar í afgreiðslu Blindrafélagsins og í síma 525-0000. Skráningu lýkur að hádegi fimmtudaginn 6. febrúar.

Endilega komið og eyðið laugardeginum með okkur!

Sjáumst hress og kát.
Lára og Hjalti