Opið hús á þriðjudegi

Opið hús á þriðjudögum og fimmtudögum.

Þriðjudaginn 25. febrúar verður Anna Sigríður Helgadóttir umsjónarmaður. Dagskráin verður um sænska sálmaskáldið Linu Sandell en hún á meðal annars þrjá dásamlega fallega sálma í íslensku sálmabókinni: Enginn þarf að óttast síður; Dag í senn, eitt andartak í einu; Ó vef mig vængjum þínum.

Einnig fær hún til sín gestinn Laufeyu Geirlaugsdóttur.

Endilega að mæta í Opið hús og skemmta sér frá kl. 13:00 til 15:00.

Bestu kveðjur,
Lára Kristín