Sunnudagsganga.

Næsta sunnudagsganga Blindrafélagsins verður 9. desember kl 13:00.

Ferða- og útivistarnefnd Blindrafélagsins efnir til gönguferða annan sunnudag í mánuði frá 14. janúar 2018 til 13. maí 2019.

Gengið verður frá aðalinngangi Hamrahlíðar 17 og sem leið liggur út í buskann, eða þangað sem göngustjóranum dettur í hug að fara. Lagt verður af stað kl 13:00 og gengið í um eina og hálfa til tvær klukkustundir og mun gönguleið taka mið af veðri, vindum og færð.
Göngustjóri er Sigurjón Einarsson (Sjonni).

Munnið að taka með ykkur gesti og góða skapið og að gönguferðir eru ekki mis erfiðar heldur mis léttar og að klæða ykkur samkvæmt aðstæðum og útliti hverju sinni.