Stuðningur til sjálfstæðis auglýsir eftir styrktarumsóknum

Stuðningur til sjálfstæðis - styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi tekur á móti umsóknum fram til 1. apríl vegna styrkja fyrir fyrri hluta 2024.

 

Veittir eru styrkir í 4 styrkjaflokkum, A, B, C og D:

A) Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.

B) Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.

C) Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum.

D) Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.

Lestu nánar um skipulagsskrá, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar um sjóðinn.

Smelltu hér til að fylla út styrkumsókn.