Blindrafélag Íslands biður íslensk stjórnvöld að tryggja að blindu og sjónskertu fólki verði gert kleift að nota íslensku í daglegum störfum sínum. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt mun það verða til þess að ekki er hægt að vinna að nauðsynlegum máltæknilausnum sem gera blindu og sjónskertu fólk mögulegt að stunda vinnu og nálgast sjálfsagðar upplýsingar án aðstoðar. Þessa lausnir eru algjörlega nauðsynlegar þeim hópi sem mun vaxa mjög á næstu árum samhliða öldrun þjóðarinnar en gagnast auk þess öllum öðrum sem nýta þessi tæki.
Fyrir blint og sjónskert fólk, sem reiðir sig mjög á raddstýringu og vélraddir í öllu sínu lífi, skiptir það öllu máli að tæki skilji íslenskt tungumál. Með sjálfvirknivæðingu, þróun gervigreindar og frekari nýtingu á raddstýringu tækja hafa orðið byltingarkenndar breytingar til góðs fyrir blinda og sjónskerta. Í þessari tækni felast þó einnig ógnanir ef stjórnvöld sjá ekki til þess að tækin skilji tungumál samfélagsins sem það býr í. Fólk getur almennt ekki verið á vinnumarkaði án þess að geta sótt sér rafrænar upplýsingar, tekið þátt í stafrænum samskiptum og stundað bankaviðskipti í gegnum netið svo dæmi séu nefnd.
Blindrafélagið hefur miklar áhyggjur af stöðu íslenskra talgervilsradda í dag og í komandi framtíð. Svo virðist sem að í núverandi fjárlagafrumvarp 2023 sé gert ráð fyrir minni fjárstuðningi við þessi mikilvægu, íslensku máltækniverkefni og því mikið í húfi. Stjórnvöld verða að gæta að því að þær tækniframfarir sem felast í raddstýringum og vélröddum, og helst er horft til við þróun tækja í dag, verði til þess að greiða aðgang fólks að upplýsingum og þátttöku í samfélaginu en útiloki það ekki frá þeim.
Til þess að svo megi verða er lykilatriði að staðið verði við fjármögnun aðgerðaáætlunar stjórnvalda um máltækni sem samið hefur verið um við framkvæmdaraðila. Enn vantar íslensku í mikið af stoðbúnaði og lausnum fyrir fatlað fólk, og því er afar mikilvægt að halda áfram á þeirri góðu vegferð sem máltækniverkefnið hefur verið á og byggja enn fremur undir áframhaldandi árangur þess. Mikilli orku og fjármunum hefur verið varið í máltækni undanfarin ár sem hafa byggt upp öflugan grunn og þekkingu meðal starfsfólks sem svo hafa skapað mikilvæg tækifæri frumkvöðla. Verði skorið jafn mikið niður í þróun máltækni á Íslandi og til stefnir í fjárlagafrumvarpinu verður miklum verðmætum kastað á glæ og starfsfólk sem hefur sérhæft sig í þróun þess mun að stórum hluta hverfa til annarra verkefna með tilheyrandi spekileka.
Íslenska er langt á eftir öðrum tungumálum þegar kemur að tæknilausnum, og ef hægt verður á þróun og viðhaldi lausna er hætta á að nauðsynleg tæknin verði mörgum ónothæf í framtíðinni. Það er áhyggjuefni þegar samkvæmt stefnumörkun ríkisstjórnarinnar er verið að færa meira af allri almennri þjónustu við almenning í stafrænar lausnir. Þetta getur dregið úr sjálfstæði og virkni einstaklinga sem þurfa að geta nýtt sér tækni til að geta sinnt sínum daglegu þörfum sjálfir og lagt sitt af mörkum til samfélagsins.
Það eru sjálfsögð mannréttindi að geta tekið þátt í stafrænu samfélagi, án þess að þurfa að afsala sér sínu eigin tungumáli í þeirri þátttöku.