Opið hús á þriðjudegi

Þriðjudaginn 13. maí verður Unnar Þór Reynisson umsjónarmaður. Hann fær til sín Þorgeir Tryggvason sem er reglulegur gestur í Kiljunni ásamt því að vera í hljómsveitinni Ljótu hálfvitarnir. Hann mun fjalla um bókmenntir sem hann telur verðskulda meiri athygli en þær njóta, ásamt því að taka eitt til tvö lög við eigin undirleik.