Stjórnun

Blindrafélagið var stofnað þann 19 ágúst 1939 af einstaklingum sem vildu stuðla að því að blindir einstaklingar tækju stjórn sinna mála í eigin hendur. Stofnfélagar sem allir voru blindir voru: Benedikt K. Benónýsson, Einar Guðgeirsson, Elísabet Þórðardóttir, Guðmundur Eyjólfsson, Guðmundur Jóhannesson, Guðrún Sigurðardóttir, Höskuldur Guðmundsson, Jóhann S. Baldvinsson, Margrét Andrésdóttir og Rósa Guðmundsdóttir. Aukafélagar sem voru sjáandi voru: Björn Andrésson, Björn Jónsson og Trausti Kristinsson. Fyrsti formaður félagsins var Benedikt Benónýsson. 

Uppbygging og rekstur Blindravinnustofunnar og fasteigna félagsins hefur sett svip mikinn svip á sögu félagsins. Í dag á félagið fasteign að Hamrahlíð 17, þar sem öll starfsemi félagsins og Blindravinnustofunnar er til húsa. Hús Blindrafélagsins hýsir einnig starfsemi Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einastaklinga, Fjólu félag fólks með samþætta sjón og heyrnarskerðingu,  Augnlækna Reykjavíkur og Gleraugnaverslun Optic Reykjavík.

Mörg af brýnustu hagsmunamálum blindra hafa náðst fram af frumkvæði félagsins, má þar nefna Hljóðbókasafn Íslands, Sjónstöð Íslands, Ferðaþjónustu blindra, Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og íslensku talgervilsraddirnar Dóra og Karl.

Hér eru 7 undirsíður.