Blindrafélagið auglýsir til leigu 60 fermetra tveggja herbegja íbúð í Hamrahlíð 17. Mánaðarleiga er um 140.000 kr. að viðbættu 7.200 kr. húsgjaldi. Stefnt er að því að íbúðin fari í útleigu í júlí 2025.
Leiguíbúðum Blindrafélagsins er úthlutað til félagsmanna. Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur og húsreglur félagsins vel áður en sótt er um íbúð.

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að leiguíbúðir Blindrafélagsins eru ekki þjónustuíbúðir.
Hægt er að skoða íbúðina miðvikudaginn 11. júní frá klukkan 14:00 til 16:00. Skráning í skoðun fer fram í gegnum afgreiðslu Blindrafélagsins í síma 525 0000 eða í gegnum netfagnið afgreidsla@blind.is.
Hér getur þú fyllt út umsókn um leiguíbúð í Hamrahlíð 17.
Umsókn ásamt afriti af fylgigögnum skal senda í seinasta lagi 15. júní 2025 á netfangið khe@blind.is