Upplýsingar varðandi skammtímaleigu

Blindrafélagið hefur 2 gestaíbúðir ásamt 2 gestaherbergjum sem skuldlausir félagsmenn Blindrafélagsins geta óskað eftir að taka á leigu til skemmri tíma. Til að bóka gistingu hafa félagsmenn samband við skrifstofu félagsins.

Blindrafélagið áskilur sér rétt til að neita félagsmönnum um að leigja íbúð/herbergi ef viðkomandi er í vanskilum við félagið eða hefur orðið uppvís að því að brjóta húsreglur í fyrri dvöl. Blindrafélagið áskilur sér rétt til að leigja ekki einstaklingum sem hafa sögu um ofbeldisbrot, kynferðisbrot auðgunarbrot eða fíkniefnabrot. Það sama á við um umsækjendur sem eiga við virkan vímuefnavanda að stríða sem að mati starfsmanna Blindrafélagsins hamlar því að viðkomandi geti dvalist í leiguhúsnæði Blindrafélagsins. Leigjendum er óheimilt að framleigja íbúðina eða hluta hennar án sérstakrar heimildar.

Að öðru leiti vísast í almennar úthlutunarreglur félagsins þar sem þar á við.