Haustfagnaður

Skemmtinefndin boðar til haustfagnaðar, föstudaginn 26. september.

Húsið opnar kl.18:00 og maturinn hefst kl. 19:00.  Boðið verður upp á gómsætar kótelettur með allskonar meðlæti frá okkar ársæla Guðmundi Hall kokki. Eins og svo oft áður verður eftirrétturinn óvissa út í haustið.
 
Við fáum til okkar þau Hlyn Þór Agnarsson og Gógó. Þau ætla að syngja nokkur lög fyrir okkur. Síðan tekur Hlynur við og spilar eitthvað flott handa okkur fram eftir kvöldi.
 
Skráning fer fram í gegnum skrifstofu félagsins í síma 525 0000 eða netfangið afgreidsla@blind.is. Miðaverð er aðeins 5.500 kr. á manninn og greiðist við skráningu. Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti. Síðasti skráningadagur er 22 september.
 
Endilega komið og fagnið komandi vetri með okkur.
 
Bestu kveðjur, Skemmtinefndin.