Opið hús hefst aftur eftir sumarfrí.
Blindrafélagið verður með Opið hús þriðjudaga og fimmtudaga í sal félagsins í Hamrahlíð 17 á annarri hæð komandi vetur. Allir félagar eru hjartanlega velkomnir í Opið hús og sjálfsagt að taka með sér vin eða vandamenn. Opnu húsin hefjast kl. 13:00.
Þriðjudaginn 16. september verður kaffihúsastemning í Opnu húsi.
Fimmtudaginn 18. september er Jónína Herborg Jónsdóttir umsjónarmaður og mun hún mæta með góða skapið og skemmta okkur.
Opið hús er sent út í beinni útsendingu í Vefvarpinu fyrir þá sem eru á landsbyggðinni eða sjá sér ekki fært að mæta í húsið. Hægt er að hlusta á Opið hús í Vefvarpinu undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“ og „Bein útsending úr sal félagsins“. Einnig er hægt að hlusta á eldri Opin hús undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“, „Opið hús, Viðburðir og ýmislegt annað efni“.