Um Karl og Dóru.
Blindrafélagið hafði forgöngu um að fjármagna og láta smíða íslensku raddirnar Karl og Dóru. Talgervilsraddirnar eru fyrir hvern sem er, en þær eru helst notaðar af þeim sem erfitt eiga með lestur með eðlilegum hætti. Hægt er að nota raddirnar í Windows stýrikerfi og flestum útgáfum af Android stýrkerfi. Með því að merkja texta í vafra, tölvupósti eða skjali, getur talgervilinn lesið textann upphátt fyrir notendann.
Raddirnar eru í SAPI5 fyrir Windows og er hægt að nota þær með öðrum stoðbúnaði eins og NVDA, JAWS eða forritum eins og Natural Reader og IVONA.
Í Android virka raddirnar með skjálestrarbúnaði eins og Voice Assistant og Talkback.
Endurgjaldslaus úthlutun talgervils.
Þeir sem eiga rétt á endurgjaldslausri úthlutun á talgervilsröddunum Karl og Dóru eru blindir, sjónskertir, lesblindir og aðrir sem geta ekki lesið með hefðbundnum hætti. Úthlutanir fara fram í gegnum Blindrafélagið, Sjónstöðina, þjónustu og þekkingarmiðstöðina fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón og heyrnarskerðingu og Hljóðbókarsafn Íslands. Þjónustuþegnar Sjónstöðvarinnar eiga þess kost að fá aðstoð við uppsetning talgervilsins. Félagsmenn Blindrafélagsins geta haft beint samband við Blindrafélagið. Aðrir einstaklingar sem eru notendur Hljóðbóksafnsins geta sótt um að fá talgervil gegnum Hljóðbókasafni Íslands og er einfaldast að senda beiðni til þeirra í tölvupósti.
Verð á talgervilsröddunum fyrir þá sem ekki eiga rétt á endurgjaldslausri úthlutun.
Einstaklingar, skólar, stofnanir og fyrirtæki geta fengið keypt talgervilinn hjá Blindrafélaginu. Pantanir og fyrirspurnir um tilboð skal senda á afgreidsla@blind.is. Einnig er hægt að kaupa raddirnar í vefverslun Blindrafélagsins.
Reynslu útgáfa af röddunum fyrir Windows.
Hægt er að ná í 30 daga prufuútgáfu af IVONA forritinu og íslensku röddunum fyrir Windows (hlekkur 2). Til að virkja raddirnar þarf að kaupa aðgangslykil í vefverslun félagsins.
Android og Apple útgáfur af röddum.
Hægt er að ná í íslenskar raddir fyrir Android og Apple í forriti sem heitir Símarómur. Hægt er að skoða það nánar á heimasíðu Grammatek og sækja raddirnar þar.
Er hægt að nota íslensku talgervlana í öllum Android símum?
Er hægt að nota íslenska talgervla í iPhone eða iPad?
Hver hefur rétt á því að fá frían talgervil?
Allir þeir sem ekki geta lesið með eðlilegum hætti hafa rétt á því að fá úthlutað talgervilsrödd. Hægt er að lesa nánar um úthlutun og kaup á upplýsingarsíðunni um talgervla.
Hvað kostar talgervlar