Alþjóðlegi Leiðsöguhundadagurinn

Ljósmynd af hópi standa fyrir framan hús Blindrafélagsins.
Á mynd eru eftirfarandi aðilar í þessari…
Ljósmynd af hópi standa fyrir framan hús Blindrafélagsins.
Á mynd eru eftirfarandi aðilar í þessari röð.
Ingólfur Garðarson Rekstrarstjóri Blindravinnustofunnar, Björgvin Víkinsson, Framkvæmdarstjóri Bónus, Guðni Forseti, Sigþór U. Hallfreðsson Formaður Blindrafélagsins, Svanhildur Anna Leiðsöguhundanotandi, Þorkell Steindal Leiðsöguhundanotandi og formaður leiðsöguhundadeildar, Kristinn Halldór Einarsson Framkvæmdarstjóri Blindrafélagsins, Rósa María varaformaður Blindrafélagsins og Júlíus Birgir leiðsöguhundanotandi.

Í dag fögnum við alþjóðadegi leiðsöguhunda.

Á síðasta miðvikudegi hvers apríl mánaðar er þessum mikilvæga degi fagnað í tilefni þess að árið 1989 voru stofnuð samtök sem fengu nafnið International Guide Dog Federation. Samtökin gegna því hlutverki að þjónusta blinda og sjónskerta einstaklinga út um allan heim með því að þjálfa og úthluta leiðsöguhundum sem stuðla að stuðningi til sjálfstæðis.

Blindrafélagið í samstarfi við Sjónstöðina sjá úthluta blindum og sjónskertum einstaklingum leiðsöguhundum.

Á Íslandi eru í dag starfandi 14 leiðsöguhundar og eru þeir staðsettir út um allt land með notendum sínum. Frá aldamótum hefur verið  úthlutað 21 hundi og núna í maí eigum við von á hundi númer 22. Hundarnir eru öflugt hjálpartæki fyrir blint og sjónskert fólk og veita þeir notendum aukið öryggi. Notandi leiðsöguhunds öðlast aukið frelsi til þess að komast um í umhverfi sínu, jafnt innandyra sem utan. Leiðsöguhundar eru skilgreindir sem hjálpartæki samkvæmt reglugerð um úthlutanir hjálpartækja fyrir blinda og sjónskertra einstaklinga.

Það er afar mikilvægt að viðhalda þessu verkefni vel með því að úthluta leiðsöguhundum til nýrra notenda sem og þeirra sem hafa verið með hund sem er farinn á eftirlaun. Við viljum þakka Bakhjörlum Blindrafélagsins fyrir stuðning sem rennur meðal annars til þessa verkefnis, þeirra sem styðja með kaupum á leiðsöguhundadagatalinu sem kemur út ár hvert ásamt ónefndum aðilum sem hafa stutt beint við félagið.

Einnig langar okkur að segja ykkur frá glænýjuverkefni sem fékk nafnið Vinir leiðsöguhunda.

Verkefnið hefur það tilgang að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda, auka virkni notenda þeirra og hvetja til þátttöku í samfélaginu. Þátttaka er fyrirtækjum að kostnaðarlausu og felst í því að bjóða leiðsöguhunda og notendur velkomna og tilkynna það með sérstökum límmiða í glugga, birta mynd á vef, segja frá á samfélagsmiðlum o.s.frv. ásamt því að upplýsa starfsfólk um réttindi leiðsöguhunda og notenda þeirra. Límmiðinn inniheldur einnig aðgengilegan QR- kóða þar sem bæði blindir og sjónskertir sem og sjáandi geta kynnt sér verkefnið nánar á vefsvæðinu okkar Vinir leiðsöguhunda | Blindrafélagið. 

Á vef verkefnisins munu koma fram allir samstarfsaðilar og þátttakendur. Þar munu helstu upplýsingar um fyrirtækin birtast, merki (e. logo) þeirra o.fl.

Til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni er hægt að skrá þátttöku hér Blindrafélagið

Í tilefni dagsins fengum við heimsókn frá Guðna Th. forseta Íslands, sem afhendi viðurkenningu til framkvæmdarstjóra Bónus, Björgvini Víkinssyni, fyrir hönd Blindrafélagsins.

Viðurkenningin þakkaði Bónus fyrir frábært samstarf ásamt þökkum fyrir að taka þátt í verkefninu Vinir Leiðsöguhunda. Bónus hefur selt vörur ÓJ & Kaaber Ísam, pakkaðar af Blindravinnustofunni og undir merkjum hennar í mörg ár.

Við þökkum öllum þeim sem hafa lagt okkur lið í gegnum árin.

Kær kveðja Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins.