
Mynd 1. BlindShell Classic 3 síminn í gylltri og dökk blárri útgáfu með stórt letur á skjá.
Blindrafélagið hefur nú fengið til sölu síma sem heita BlindShell og eru þetta farsímar með áþreifanlegum tökkum, stóru letri og tala íslensku við notendur. Þetta eru fyrstu takkasímarnir sem geta talað íslensku við notendur og eru sérstaklega einfaldir í notkun. Símarnir eru hannaðir af fyrirtækinu Matapo a.s. í Tékklandi í samvinnu við blinda og sjónskerta. Blindrafélagið hefur lengi verið í samstarfi við Matapo og unnið að því að koma þessum símum á íslensku og hefur mikil vinna verið lögð í að þýða viðmót símanna og að fá íslenskan talgervil til að virka í símanum.
BlindShell símarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir fólk sem á erfitt með, eða getur ekki, notað snjallsíma með snertiskjá, og bjóða einnig upp á ýmislegt sem slíkir snjallsímar hafa. Í BlindShell er hægt að senda og svara SMS smáskilaboðum, lesa og skrifa tölvupóst, halda utan um dagbók og minnispunkta, vekjaraklukku, skeiðklukku og fá upplýsingar um veður og veðurspá komandi daga. Einnig er hægt að sækja og nota YouTube, WhatsApp og mörg önnur forrit og leiki. Síminn er ekki einungis fyrir blinda og sjónskerta heldur getur nýst mörgum öðrum sem ekki geta notað snjallsíma.
Þeir íslensku notendur sem hafa fengið sér BlindShell símana segja þá algjöra byltingu fyrir sig. Loksins séu komnir símar sem eru einfaldir og þægilegir og veiti þeim mikið sjálfstraust og öryggiskennd.
Hér er hægt að sækja íslenskan leiðarvísir fyrir BlindShell Classic 3 símann.
Síminn styður ekki 100% við notkun rafrænna skilríkja á SIM-korti eins og eru notuð mikið á Íslandi. Margir notendur segja þó að síminn virki fyrir þá með þessum skilríkjum, en Blindrafélagið getur ekki ábyrgst að þau virki.
Athugið að félagar í Blindrafélaginu geta keypt símann með afslætti og er því betra að kaupa hann gegnum skrifstofu félagsins í síma 525 0000.
BlindShell er þróaður og hannaður í Prag af Matapo a.s.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu BlindShell.