Félagsfundur 10. nóvember.
        
		
	
	
					 3. nóvember, 2016			
			
	
				
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Fundarsetning formanns.
 
- Kynning fundarmanna
 
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
 
- Afgreiðsla fundargerða.
 
- Formaður kynnir stefnumótunarvinnu stjórnar.  Gerð verður grein fyrir samantekt Sigurborgar K. Hannesdóttur af Stefnumóti félagsins í maí síðastliðnum og hverng það rímar saman við stefnumótun félagsins frá 2014.
 
- Umræður
 
- Önnur mál.
 
 Á heimasíðu Blindrafélagsins má nálgast stefnumótunargögn sem verða til umfjöllunar á félagsfundinum.     Starfsfólk mun verða á staðnum til að aðstoða þá sem þess óska.     Fyrir hönd stjórnar  Sigþór U. Hallfreðsson  Formaður    e.s. Að fundi loknum boðar skemmtinefnd til samsöngs og pítsuveislu.    | 
 
 
 | 
Syngjum saman.
Í beinu framhaldi af félagsfundinum fimmtudaginn 10. nóvember næstkomandi stendur skemmtinefnd Blindrafélagsins fyrir samsöng.   Hlynur Þór Agnarsson ásamt söngkonunni Elísabet Ólafsdóttir leiða sönginn.  Á boðstólum verða pítsusneiðar og drykkir á vægu verði.     Brýnið nú raddböndin og takið hressilega undir söngin.  Skemmtinefnd. | 
 
 
 | 
Fundargerðir til samþykktar.
  Fundargerðir sem þarf að samþykkja eru:    Fundargerð félagsfunds sem haldinn var 9. og 10. febrúar 2016 og fundargerð félagsfundar sem haldinn var í Blindrafélaginu miðvikudaginn 2. mars 2016 | 
 
 
 | 
	 
		
	
	
		
														- 
							
								 1. nóvember, 2016							
							
						 
																			- 
							
								25. október, 2016							
							
						 
																			- 
							
								18. október, 2016