Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar miðvikudaginn 15. október, á degi hvíta stafsins, klukkan 16:30.
Fundurinn verður í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á fundinn geta skráð sig á fjarfund. Fundinum verður einnig streymt í vefvarpinu.
Dagskrá:
- Fundarsetning.
- Kynning fundargesta.
- Kjör starfsmanna fundarins.
- Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar.
- Umræður um fyrirhugaða sameiningu Hljóðbókasafns Íslands, Kvikmyndasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
- Önnur mál.
Mikilvægt er að skrá sig á fundinn hjá skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.
Á fundinum verður boðið upp á léttar veitingar.
Fundargerð síðasta félagsfundar má finna neðst í fréttabréfinu.
Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,
Sigþór U. Hallfreðsson, formaður.