Félagsfundur miðvikudaginn 13. mars.

Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar miðvikudaginn 13. mars klukkan 16:30.
Fundurinn verður í sal Blindrafélagsins 2. hæð í Hamrahlíð 17.
Fundinum verður einnig streymt í vefvarpinu.

Dagskrá:
Fundarsetning.
Kynning fundargesta.
Kosning starfsmanna fundarins.
Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar.
Fyrirhuguð dagskrá er:  Kynning um tillögur að nýju örorkulífeyriskerfi og kynning á starfsemi Bjarkarhlíðar.

Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar. Til að hægt verði að áætla veitingar er fólk beðið um að skrá sig á fundinn hjá skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.

Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,
Sigþór U. Hallfreðsson, formaður.