Haustferð Opins Húss.

Í þetta sinn er förinni heitið austur á Hvolsvöll. Þegar komið verður á áfangastað byrjum við á að fá okkur kaffi og kruðerí, síðan verður nýja eldstöðvasafnið, Lavacenter, skoðað. Þaðan verður ekið í átt til Reykjavíkur og snæddur kvöldverður á leiðinni.
Allir félagsmenn Blindrafélagsins og þeirra aðstandendur velkomnir.
Lagt verður af stað frá Hamrahlíðinni kl. 13:00.
Skráning í ferðina er á skrifstofunni í síma 525-0000 eða hjá Steinunni í síma 869-2004.