Laust starf: Trúnaðarmaður

Meginhlutverk trúnaðarmanns er að vera í reglulegu símasambandi við þá félagsmenn sem honum eru úthlutaðir sem skjólstæðingar og veita þeim jafningjastuðning. Öll samskipti skulu vera í fyllsta trúnaði.
Starfið er unnið í fjarvinnu og er starfshlutfallið 25%. Grunnþekking í notkun tölvu og/eða snjallsíma er æskileg.

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 2. október. Umsóknir skulu berast til Kristínar Waage, starfandi framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, á netfangið kristin@blind.is.