Vestmannaeyjabær samþykkir að gera þjónustusamning við Blindrafélagið.

Að frumkvæði Blindrafélagsins hefur Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja samþykkt að Vestmannaeyjabær geri samning við Blindrafélagið um að félagið taki að sér að veita ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu til einstaklinga með lögheimili í Vestmannaeyjum sem eru blindir og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur vegna fötlunar sinnar.

Umsækjendur sækja um ferðaþjónustu til Fjölskyldu- og fræðslusviðs sem fer yfir umsókn og ákveður fjölda ferða í samræmi við mat á þörf. Hámark ferða eru allt að 20 ferðir á ári.

Fjölskyldu- og tómstundaráð tekur ákvörðun um frávik frá hámarksfjölda að undangengnu þjónustumati.