Vetrarhappdrætti 2021 hafið

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir happdrætti félagsins, með sínum glæsilegu vinningum, veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa happdrættismiða tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.

Hægt að kaupa miða í vefverslun félagsins.

Glæsilegir vinningar:

 

Toyota Corolla Hybrid Active fimm dyra, 1.8, sjálfskiptur, að verðmæti kr. 5.190.000

10 gjafabréf frá Erninum reiðhjólaverslun, hvert að verðmæti kr. 500.000

15 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 300.000

35 gistivinningar fyrir tvo í sjö nætur með morgunverði á þriggja stjörnu Íslandshóteli að eigin vali, hver að verðmæti kr. 188.300

35 gistivinningar fyrir tvo í tvær nætur með morgunverði á þriggja stjörnu Íslandshóteli að eigin vali, ásamt þriggja rétta kvöldverði annað kvöldið, hver að verðmæti kr. 59.900

20 Samsung Galaxy S21+ snjallsímar, hver að verðmæti kr. 185.995  

20 gjafakort frá Smáralind, hvert að verðmæti kr. 100.000

 

Alls 136 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr.29.096.900.

Dregið 13. desember 2021

Stuðningur þinn er mikilvægur!