Vetrarhappdrættið er hafið

Sala á miðum í vetrarhappdrætti Blindrafélagsins er hafin. Með kaupum á happdrættismiða leggur þú þitt að mörkum við að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu, innihaldsríku lífi á eigin forsendum.

Kaupa happdrættismiða á heimasíðu félagsins.

Líkt og vanalega eru vinningarnir hver öðrum glæsilegri og hver veit nema heppnin verði með þér þetta árið.

                         Vinningar í vetrarhappdrættinu eru eftirfarandi:

•             Toyota Yaris Cross Hybrid Active FWD, 5 dyra, 1.5, sjálfskiptur, að verðmæti kr. 5.580.000.

•             10 gjafabréf frá Erninum, hvert að verðmæti kr. 500.000.

•             20 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti  kr. 300.000.

•             55 gistivinningar í standard tveggja manna herbergi með morgunverði í 7 nætur á Íslandshóteli að eigin vali, hver að verðmæti kr. 188.300.

•             25 Samsung Galaxy Z Flip4 snjallsímar, hver að verðmæti kr. 179.900.

•             20 gjafakort frá Smáralind, hvert að verðmæti kr. 100.000.

Dregið verður í happdrættinu þann 14. desember og vinningaskrá birt á heimasíðu Blindrafélagsins.

Innilegar þakkir fyrir stuðning þinn til Blindrafélagsins.