Jóla Opið hús

Jóla Opið hús verður haldið laugardaginn 13. desember. Húsið opnar kl. 10:30 og dagskrá hefst kl. 11:00. Gestir í Opnu húsi að þessu sinni verða Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og rithöfundur, ásamt hljómsveitinni Baggalúti.

Klukkan 12:00 verður borið fram kalt hangikjöt með öllu tilheyrandi meðlæti og kostar máltíðin kr. 3.500 á mann. Innifalið er vatn og gos. Bjór og léttvín verður selt á vægu verði.

Að loknum hádegisverði mætir hljómsveitin Baggalútur. Þeir munu sjá til þess að koma öllum í jólaskap sem ætti að endast fram yfir þrettándann.

Skráning er hafin á skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525 0000 eða í afgreiðslunni. Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 11. desember.

Mætum nú sem flest og undirbúum jólin með því að hlýða á Veru Illugadóttur og njóta jólatónlistar að hætti Baggalútanna.